Maggi Kjartans á trúnó

Hljómahöll

5. febrúar

Sala hefst

10. janúar 2026, 12:00

(eftir 2 daga)

Það er Hljómahöll sannur heiður að segja frá því að Maggi Kjartans kemur fram á trúnó-tónleikaröðinni þann 5. febrúar næstkomandi en þetta verður í fyrsta sinn sem Maggi kemur fram á tónleikaröðinni.

Magnús Jón Kjartansson er einn af áhrifamestu tónlistarmönnum íslenskrar tónlistarsögu frá upphafi. Ferill hans spannar meira en fimm áratugi. Magnús, sem fæddist í Keflavík þann 6. júlí 1951, hóf tónlistarferil sinn þegar stofnuð var drengjalúðrasveit við barnaskólann í Keflavík. Þar lék hann á trompet fyrst hjá lúðrasveitinni en síðan í Tónlistarskólanum í Keflavík. Magnús var aðeins 15 ára gamall þegar hann fór að leika með hljómsveitum í klúbbunum á Keflavíkurflugvelli. Magnús stofnaði hljómsveitina Júdas með Finnboga bróður sínum og tveimur vinum þeirra og lék með fjölda annarra hljómsveita svo sem Trúbrot, Brunaliðinu, Óðmönnum, HLH-flokknum o.fl. Magnús hefur verið einn afkastamesti hljóðvers tónlistarmaður landsins, stjórnað upptökum og útsett og samið tónlist fyrir eigin hljómsveitir og aðra flytjendur. Magnús hefur komið að vinnslu fjölmargra hljómplatna, þar á meðal eru sólóplötur Vilhjálms Vilhjálmssonar og margra annarra. Hann hefur starfrækt eigið hljóðver, stjórnað kórum m.a. Flugfreyjukórnum og Sönghóp Suðurnesja, samið þekkt lög, auglýsingastef og tónlist fyrir sjónvarpsþætti og kvikmyndir. Árið 2023 hlaut hann Súluna, menningarverðlaun Reykjanesbæjar, fyrir framlag sitt til dægurtónlistar og tónlistarlífs samfélagsins og sama ár hlaut hann einnig heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna, fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar og margra ára starf sem formaður og framkvæmdastjóri Félags tónskálda og textahöfunda og formaður STEFs, Samtaka tónskálda og eigenda flutningsréttar.

Tónleikaröðin „trúnó” hefur slegið í gegn í Hljómahöll undanfarin misseri. Hugmyndin er að tjalda öllu til og bjóða upp á stórtónleika en halda þá í Bergi í Hljómahöll sem tekur aðeins um 100 gesti. Listamenn sem vanir eru að spila fyrir talsvert stærri hóp áhorfenda stíga þar á svið í nálægð við færri gesti en vanalega.

Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikarnir hefjast kl. 20:00. Takmarkaður fjöldi miða í boði.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger