Matthías Harðarson –Hádegistónleikar / Matinée

Hallgrímskirkja

4. apríl

Miðaverð frá

3.200 kr.

Matthías Harðarson –Hádegistónleikar / Matinée

Hádegistónleikar

Matthías Harðarson, organisti Dómkirkjunnar í Reykjavík heldur hádegistónleika í Hallgrímskirkju laugardaginn 4. apríl kl. 12

Matthías Harðarson hóf píanónám 10 ára gamall við Tónlistarskólann í Vestmannaeyjum. Meðal kennara hans þar voru þau Gíslína Sól Jónatansdóttir, Guðmundur H. Guðjónsson og Kittý Kovács. Hann lærði einnig á saxófón undir handleiðslu Stefáns Sigurjónssonar. Að loknu miðprófi á píanó hóf Matthías nám á orgel hjá þáverandi organista Landakirkju, Guðmundi H. Guðjónssyni og síðar hjá Kittý Kovács. Árið 2016 lauk Matthías kirkjuorganistaprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar og lauk kantorsprófi sem og BA námi við Listaháskóla Íslands 2020. Þar lærði hann orgelleik hjá Birni Steinari Sólbergssyni, kórstjórn hjá Magnúsi Ragnarssyni og litúrgískanorgelleik hjá Guðný Einarsdóttur, Eyþóri Inga Jónssyni og Láru Bryndísi Eggertsdóttur. Samhliða orgelnáminu lagði Matthías stund á Vélstjórn og útskrifaðist sem Vélfræðingur árið 2017. Matthías hefur lokið mastersnámi í kirkjutónlist við konunglega tónlistarháskólann í Árósum. Undir leiðsögn Kristian Krogsøe, Lars Rosenlund Nørremark og Ulrik Spang-Hanssen. Matthías er organisti við Dómkirkjuna í Reykjavík.

Hallgrimskirkja – Þinn tónleikastaður

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger