Umbra: Rökkrið yljar

Hannesarholt

31. janúar

Miðaverð frá

3.900 kr.

Rökkrið yljar

Hljómsveitin Umbra Ensemble er skipuð tónlistarkonunum Alexöndru Kjeld, Arngerði Maríu Árnadóttur, Guðbjörgu Hlín Guðmundsdóttur og Lilju Dögg Gunnarsdóttur en þær hafa í sameiningu skapað sinn eigin hljóðheim sem þykir hafa þjóðlegan, fornan blæ með dimmum undirtón.

Yrkisefni fyrri tíma þar sem þjáning, synd og breyskleika mannsins er ekki af skornum skammti, hvort sem litið er til Íslands eða annarra landa. Umbra skapar stund í tónum og tali þar sem sjónum er beint að örlögum og raunum. Myrkur og dulúðleiki fær hér að streyma fram í tónlistinni og kafað verður ofan sagnaarf og ljóð fyrri alda. Allar útsetningar eru eftir Umbru.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger