© 2025 Tix Miðasala

Salurinn
•
6. mars
Miðaverð frá
9.900 kr.




Bæjarlistamaður Kópavogs Sigríður Beinteinsdóttir mun fara í gegnum ferilinn ásamt sögum frá ferlinum og sjálfri sér á tónleikum í Salnum Kópavogi þann 6. mars.
Sigga er löngu orðin þjóðþekkt og spannar ferillinn hennar vel yfir 40 ár, lögin á ferlinum orðin næstum óteljandi. Sigga hefur gefið út margar sóló plötur á sínum ferli og lögin orðin mörg. Allar sólóplötur Siggu hafa náð gullplötu sölu og nokkrar þeirra platínu sölu. Lög eins og Brú yfir boðaföllin, Til eru fræ, Þakklæti, Ég og þú, Skýið ofl. eru af sólóplötum Siggu og lög sem flestir ættu að þekkja. Ekki má gleyma Stjórninni sem hefur verið þungamiðjan í söngferli Siggu og lög eins og Ég lifi í voninni, Ég fæ aldrei nóg af þér, Við eigum samleið og fleiri lög sem hafa kætt landann.
Ekki má gleyma Eurovision þátttöku Siggu en hún tók þátt með Grétari Örvars og Stjórninni 1990 með lagið Eitt lag enn, 1992 fór Sigga og Stjórnin aftur með lagið Nei eða Já ásamt Sigrúnu Evu og 1994 fór Sigga sem sóló artisti með lagið Nætur.
Þetta verður skemmtileg kvöldstund þar sem Sigga ásamt hljómsveit fer yfir skemmtilegan feril og syngur öll helstu lögin ásamt því að segja skemmtilegar sögur af sjálfri sér og frá ferlinum. Þetta er kvöld fyrir alla aðdáendur Siggu.
Ekki láta þennan einstaka viðburð fram hjá þér fara.

