Hátíðartónleikar Rótarý á Íslandi 2026

Salurinn

4. janúar

Miðaverð frá

6.900 kr.

Hátíðartónleikar Rótarý á Íslandi 2026 fara fram í Salnum í Kópavogi þann 4. janúar næst komandi. 

Sérstakur heiðursgestur tónleikanna verður Víkingur Heiðar Ólafsson einn fremsti píanóleikari heims og styrkþegi sjóðsins árið 2005. Víkingur mun afhenda styrki Tónlistarsjóðs Rótarý á tónleinum og munu styrkþegarnir leika fyrir gesti ásamt fleira tónlistarfólki sem fengið hefur styrki sjóðsins í gegnum árin.

Á tónleikunum koma fram styrkþegar sjóðsins í ár þær Helga Diljá Jörundsdóttir, fiðluleikari og Ásta Dóra Finnsdóttir, píanóleikari. Þá munu Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópransöngkona og styrkþegi sjóðsins árið 2018 syngja en hún sem sló í gegn í Brúðkaupi Fígarós í vor. Með henni leikur Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari. Þá munu Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, sellóleikari og styrkþegi 2018 og Guðbjartur Hákonarson, fiðluleikari og styrkþegi 2023 einnig koma fram.

Tilgangur Tónlistarsjóðs Rótarý á Íslandi er að veita ungu tónlistarfólki sem skarað hefur fram úr á einhverju sviði tónlistar viðurkenningu í formi fjárstyrks til frekara náms. Veitt er úr sjóðnum árlega.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger