© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
17. mars
Miðaverð frá
11.900 kr.




Krishna Das, einn virtasti kirtan-söngvari heims mun hefja „Home in the Heart“ tónleikaferðalag sitt um Evrópu í Reykjavík 17. mars.
Hér er um einstakt tækifæri að ræða fyrir íslenska áhorfendur að sjá og heyra einn áhrifamesta núlifandi flytjanda andlegrar tónlistar. Krishna Das er þekktur um allan heim fyrir kraftmikla og djúpa nærveru á sviði þar sem hann leiðir áhorfendur í gegnum kirtan – svokallaða „call and response“ sönghefð frá Indlandi – sem skapar einstaka stemningu samveru, kyrrðar og upplyftingar. Hann hefur í áratugi verið leiðandi á sínu sviði og komið fram víða um heim fyrir fullum sölum og m.a. hlotið Grammy tilnefningu.
Hvort sem þú hefur fylgt honum lengi eða ert að taka fyrstu skrefin í kirtan þá er þetta kvöld sem þú vilt ekki missa af.
Gestir eru hvattir til að taka með sér jogapúða til að sitja á enn einnig verða stólar í salnum
Daginn eftir eða þann 18. mars mun Krishna Das halda vinnustofu í Yogashala skráning og nánari upplýsingar á www.yogashala.is/krishna-das

