Ævintýri í Jólaskógi með bættu aðgengi

Elliðaárdalur, Reykjavík

10. desember

Miðaverð frá

1.000 kr.

Umhyggja, Sjónarhóll, ÖBÍ, Þroskahjálp og Gló stuðningsfélag standa fyrir sýningum á Ævintýri í jólaskógi með bættu aðgengi þann 10. des í Elliðaárdalnum frá klukkan 17.

Sýningar hefjast á 10 mínútna fresti og tekur hver leiksýning um það bil klukkutíma. Áhorfendur ferðast í litlum hópum um Elliðaárdalinn, vopnaðir vasaljósum og hitta á ferðum sínum persónur úr jólafjölskyldu okkar Íslendinga. Á eftir fá svo allir heitt kakó og piparkökur.

Miðaverð er 1.000 kr. og frítt fyrir börn undir 2 ára.

Sýningin hentar öllum sem þurfa bætt aðgengi, hvort sem um er að ræða börn eða fullorðna og fjölskyldur þeirra. Áhorfendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri og mæta með vasaljós.

Nánar um sýninguna:

Ævintýri í Jólaskógi er tæplega klukkutíma löng sýning þar sem áhorfendur fara í litlum hópum um Elliðaárdalinn, vopnaðir vasaljósum og hitta á ferðum sínum persónur úr uppáhalds jólafjölskyldu okkar Íslendinga, þau Grýlu, Leppalúða, jólasveinana og tröllasystkini þeirra.

Sýningar hefjast á 10 mínútna fresti og byrja ekki fyrr en farið er að skyggja. Þannig byrjar fyrsta sýning hvers dags klukkan 17.00 og leggur þá fyrsti hópurinn af stað í vasaljósagöngu inn í skóginn.

Ferðalagið hefur verið varðað með jólakúlum, luktum og öðru jólaskrauti svo áhorfendur eigi það ekki á hættu að villast í skóginum.

Eftir stutta göngu koma áhorfendur svo að fyrsta „sviðinu" en þar er vel tekið á móti hópnum og flutt lítil jólasaga um ævintýri tröllafjölskyldunnar, lífið í Grýluhelli og jól fyrri tíma. Verkið er tæpar tíu mínútur í flutningi og þegar því lýkur heldur hópurinn áfram ferð sinni. Litlu innar rekast áhorfendur á fleiri tröll en alls er um að ræða fjögur „svið“, fjórar litlar sögur, sem hver um sig er flutt af einhverjum íbúa Grýluhellis. Ferðin tekur þannig tæpan klukkutíma og að henni lokinni geta áhorfendur fengið mynd af sér með jólasveini auk þess sem boðið er upp á heitt kakó og piparkökur.

ATH. að ferðalagið hefst við Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegi 6

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger