© 2025 Tix Miðasala
Bæjarbíó
•
10. janúar
Miðaverð frá
6.990 kr.




Rúnar Þórisson fagnar tímamótum á AFMÆLIS- ÚTGÁFU- og FERILSTÓNLEIKUM í Bæjarbíó 10. janúar kl 20.00.
Á tónleikunum í Bæjarbíó kemur fram fjöldi samstarfsmanna Rúnars í gegnum árin, Andrea Gylfadóttir, Helgi Björnsson, Lára Rúnarsdóttir, Margrét Rúnarsdóttir, hljómsveitirnar DÖGG og ÝR auk meðlima hljómsveitarinnar GRAFÍK. Leikin verða þekkt lög þessara sveita sem og lög af nýjustu plötu Rúnars "Svo fer" og lög af fyrri plötum. Hljómsveitina skipa einvalalið hljóðfæraleikara m.a. Arnar Þór Gíslason trommuleikari og Birkir Rafn Gíslason gítarleikari sem hafa starfað með Rúnari síðustu tvo áratugi.
Með tónleikunum og útgáfu á nýrri plötu "SVO FER" fagnar Rúnar tímamótum jafnt í lífi sínu og á ferli. Nýja platan er í orðum og tónum tímaskjól, ferðalag minninga sem leita skjóls í eilífðinni. Tónlistin allt frá því að vera framsækin, klassísk- popp- og ballöðuskotin er mótuð af minningunum og endurspeglar mismunandi tímabil á ferli Rúnars en um þessar mundir eru 20 ár frá því sólóferill hans hófst með plötunni Ósögð orð og ekkert meir, 40 ár siðan Grafík sló í gegn með lögum eins og Þúsund sinnum segðu já og Húsið og ég, 60 ár síðan hann eignaðist sinn fyrsta gítar sem síðar varð til þess að hann fór í ýmsar hljómsveitir, þar fyrst að nefna hljómsveitina DÖGG. Þá eru heil 70 ár síðan hann opnaði augun með lífið sjálft í þeim sömu höndum þar af réttt rúm 5 ár frá endurnýjun lífdaga eftir ofkólnun í sjósundi. Þá eru u.þ.b. 50 ár síðan þeir Rabbi trommari og Rúnar sórumst í tónlistarlegt fóstbræðralag sem lagði grunninn að GRAFÍK en áður höfðu þeir m.a. verið saman í hljómsveitinni ÝR, 30 ár eru liðin frá því hann kom heim erlendis frá að loknu tónlistarnámi og 10 frá þeirri áskorun að gefa út eitt frumsamið lag og texta á mánuði í næstum heilt ár.
Þannig hanga saman tímamótin og tilefnin til að minnast með stórtónleikum og útgáfu á nýrri plötu:
70 ár: Að augum leit þennan heim.
60 ár: Að eignaðist fyrsta gítarinn.
50 ár: Að kynntist Rabba vini sínum og spilafélaga.
40 ár: Að hljómsveitin Grafík sló í gegn.
30 ár: Að lauk tónlistarnámi í Svíþjóð.
20 ár: Að sólóferill hófst með fyrstu sólóplötunni.
10 ár: Að tókst á við verkefnið eitt lag á mánuði í nær heilt ár.
18 ára aldurstakmark.

