© 2026 Tix Miðasala
Harpa
•
31. mars
Miðaverð frá
20.900 kr.




Reykjavík Early Music Festival er fyrsta alþjóðlega barokkhátíðin í Reykjavík og verður haldin í þriðja sinn dagana 1. mars-2. apríl 2026 í Hörpu. Hátíðarpassinn gildir á alla tónleika hátíðarinnar, sjá https://reykjavikearly.is/
Reykjavík Early Music Festival er einstakur vettvangur fyrir samstarf íslenskra og erlendra tónlistarhópa sem sérhæfa sig í upprunaflutningi barokktónlistar. Listræn stjórn hátíðarinnar er í höndum Elfu Rúnar Kristinsdóttur, fiðluleikara og eins stofnanda Barokkbandsins Brákar.

