© 2025 Tix Miðasala

Hannesarholt
•
11. - 12. febrúar
Miðaverð frá
4.900 kr.




Hvað þarf að gera til að komast í þekktustu og lengstu Íslendingasögu allra tíma?
Þorgerður og Helga, Njálsdætur, velta þessari spurningu fyrir sér þegar orð berst um að verið sé að skrifa Brennu-Njáls sögu.
En hvað telst þess virði að skrifa niður og hvað verður þurrkað út?
Í þessari kómísku og hjartnæmu endursköpun fá Njálsdæturnar loks rödd. Þær takast á við söguna, sjálfsmyndina og staðalímyndir kvenna – og spyrja sig: ef sagan gleymdi okkur, getum við þá skrifað okkur sjálfar inn aftur?
Höfundar og leikarar: Margrét Braga Geirsdóttir og Ýr Aimée Gautadóttir Presburg
Leikstjóri: Sigríður Halla Eiríksdóttir

