© 2025 Tix Miðasala
Seltjarnarneskirkja
•
11. desember
Miðaverð frá
8.200 kr.




Sígild jól
Tónleikarnir Sígild jól eru dásamleg upplifun á aðventunni þar sem ríkir hátíðleg og vinaleg stemning. Tónleikarnir fara fram í Seltjarnarneskirkju við tindrandi kertaljós. Nokkrir af okkar fremstu sígildu söngvurum færa okkur fagra tóna en það eru þau Dísella Lárusdóttur sópran, Gissur Páll Gissurarson tenor og Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzo-sópran.
Á dagskránni er góð blanda af fallegum jólasöngvum og -sálmum íslenskum og erlendum. Má þar nefna perlur eins og Ave Maríur, dúettinn Con te partero, Pie Jesu, Jólin alls staðar, Yfir fannhvíta jörð, Ó helga nótt og Heims um ból.
Listamenn Sígildra jóla:
Dísella Lárusdóttir, sópran.
Gissur Páll Gissurarson, tenor.
Sigríður Ósk Kristjánsóttir, mezzo-sópran.
Tómas Guðni Eggertsson, orgel.
Hjörleifur Valsson, fiðla.
Þórdís Gerður Jónsdóttir, selló.
Listrænn stjórnandi tónleikanna er Sigríður Ósk Kristjánsdóttir.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 í Seltjarnarneskirkju, sem opnar kl. 19:30 og það er frjálst sætaval

