© 2025 Tix Miðasala
Borgarleikhúsið
•
2. nóvember
Sala hefst
29. október 2025, 12:00
(eftir 4 daga)




Borgarleikhúsið, Listabraut 3 @13:00
DANSAÐ FYRIR ÞIG
Dansarar framtíðar frá ýmsum dansskólum og danshópum koma saman, sýna listir sínar á Stóra sviðinu og fagna fjölbreytileika dansins, en íslenska danssenan er jafn litrík eins og hún er stór.
Heiðursgestir frá Íslenska dansflokknum hefja sýningu.
Sýningin er einn af fjölmörgum viðburðum Unglistar, listahátíðar ungs fólks sem er vettvangur fyrir ungt upprennandi listafólk þar sem skáldskapur og myndsköpun fá að flæða frjálst, í takti við tónlistarveislur, óheftan dans, lifandi leiklist og aðra viðburði þar sem sköpunargleðin er í öndvegi.
Viðburðarstjóri: Rebekka Sól Þórarinsdóttir
Framkvæmdastjórn Unglistar: Ása Hauksdóttir
Skólar og hópar sem taka þátt:
Danslistarskóli JSB
Listdansskóli Íslands
Listdansskóli Hafnarfjarðar
Dans Brynju Péturs
Dansskóli Birnu Björns
Dansgarðurinn - Óskandi
Klassíski Listdansskólinn
Listaháskóli Íslands
DansKompaní
Íslenski Dansflokkurinn

