© 2026 Tix Miðasala
Reykjavík
•
5. - 7. nóvember
Miðaverð frá
9.900 kr.




ICELAND AIRWAVES
Árið 2026 fer formleg dagskrá Iceland Airwaves fram dagana 5-7. nóvember í miðborg Reykjavíkur og það borgar sig alltaf að kaupa miða strax, áður en verðið hækkar!
SÉRVIÐBURÐIR (SPECIAL EVENTS)
Þrír stærri viðburðir fara fram í Hörpu í ár og verður tilkynnt fljótlega hvenær miðasala á þá hefst. Þau sem eru búin að tryggja sér passa á hátíðina fá forgang og afslátta á alla þrjá sérviðburðina.
Shygirl kemur hátíðinni af stað í Silfurbergi Hörpu þann 4. nóvember. Stórstjarnan Daði Freyr og Sinfóníuhljómsveit Íslands sameinast í Eldborg þann 5. nóvember og við sláum botninn í hátíðina þann 8. nóvember þegar The Streets stígur á svið í Eldborg.
Nánari upplýsingar um þessa þrjá sérviðburði má finna hér:
Shygirl: https://icelandairwaves.is/shygirl/
Daði Freyr & Sinfó: https://icelandairwaves.is/dadi
The Streets: https://icelandairwaves.is/the-streets/
STAÐFESTIR LISTAMENN Á ICELAND AIRWAVES 2026 OFFICIAL PROGRAM:
Adult DVD (UK) | Amor Vincit Omnia (IS) | Arima Ederra (US) | Árný Margrét (IS) | Axel Flóvent (IS) | Bana Zahiti (XK) | Bleech 9:3 (IE) | David Bay (DE) | Dove Ellis (IE) | Emmsjé Gauti (IS) | HÉR (IS) | Inspector Spacetime (IS) | Joe & The Shitboys (FO) | Júníus Meyvant (IS) | KOIKOI (RS) | Liim (US) | MAMMÚT (IS) | Oyama (IS) | PISS (CA) | Pollyfromthedirt (UK) | Róshildur (IS) | RSP (FO) | Skeler (AU) | SYL (DK) | TÁR (IS) | Tunghoyrt (FO) | virgin orchestra (IS) | Yaelokre (IS/PH) - fleiri munu fljótlega bætast við.
UM ICELAND AIRWAVES
Í nóvember ár hvert fyllist Reykjavík af lífi og tónlist í hverjum krók og kima þar sem upprennandi íslenskir listamenn og alþjóðlegar stórstjörnur koma fram og leika list sína. Á hátíðina mæta tónlistarunnendur sem ráfa um tónleikastaði í leit að næstu stjörnum íslensks tónlistarlífs eða til að horfa á sitt uppáhalds atriði.
Iceland Airwaves er óumdeilanlega mikilvægasti stökkpallur og kynningarvettvangur fyrir íslenska tónlist og tækifæri fyrir tónlistarunnendur til að sjá heimsklassa tónlistarfólk koma fram og í leiðinni uppgötva eitthvað nýtt í borg sem skapar einstaka stemningu sem fólk víðsvegar af úr heiminum sækist eftir ár eftir ár.

