© 2025 Tix Miðasala
Ráðhús Ölfus
•
2. nóvember
Miðaverð frá
2.900 kr.
Skelfilega skemmtileg, dularfull og spennandi tónlist, og allt þekkt stef, úr ýmsum áttum sem á það sameiginlegt að leika við ímyndunaraflið og galdra fram gæsahúð. Tónleikarnir henta allri fjölskyldunni nema þeim allra yngstu og áhorfendur hvattir til þess að mæta í sínu allra hræðilegasta dressi - það munu lúðrameðlimir gera.
Tónleikarnir eru lokahnykkur hinnar svokölluðu Þollóween-viku sem haldin er ár hvert í Þorlákshöfn í tilefni Hrekkjavökunnar og verða sunnudaginn 2. nóvember kl. 20:00 í Ráðhúsi Ölfuss í Þorlákshöfn.