© 2025 Tix Miðasala
Þjóðleikhúsið
•
21. - 24. október
Miðaverð frá
0 kr.
Í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá því að íslenskar konur breyttu sögunni með því að taka sér frí frá störfum 24. október 1975, verður platan Áfram stelpur! flutt í heild sinni í Þjóðleikhúskjallaranum og sagan rifjuð upp. Platan var gefin út í kjölfar þess að nokkrar leikkonur í sýningunni Ertu nú ánægð, kerling, sem frumsýnd var í Þjóðleikhúskjallaranum árið 1974 ákváðu að gefa út plötu í tilefni af Kvennaári Sameinuðu þjóðanna 1975. Það er hreint stórkostlegt að segja frá því að þátttakendur í dagskránni eru að hluta til leikkonur sem sungu inn á plötuna á sínum tíma. Yngri leikkonur taka svo upp merkið og flytja með þeim eldri lögin af plötunni og segja okkur þessa merkilegu sögu sem ekki má gleymast.
Sýningar verða tvær. Frumsýning 21.október klukkan 19.30 og sérstök hátíðarsýning á 50 ára afmæli kvennafrídagsins 24.október klukkan 19.30.
Leikkonurnar Steinunn Jóhannesdóttir, Sigrún Björnsdóttir, Guðrún Alfreðsdóttir, Saga Jónsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Brynhildur Björnsdóttir, Halldóra Björnsdóttir, Salka Gústafsdóttir, Selma Rán Lima og Þórunn Lárusdóttir.
Að auki verða hinar ungu og efnilegu Valgerður Birna og Sigrún Ásta Magnúsdætur, Katla Petersen og Steinvör Íris Ingvadóttir með í sýningunni.
Kvennakórinn Kötlurnar og Múltíkúltíkórinn koma einnig við sögu.
Leikstjóri: Þórunn Lárusdóttir
Tónlistarstjóri: Þórhildur Hólmgeirsdóttir
Ljós: Haraldur Jónsson
Hljóð: Jóhannes Sigurðsson