© 2025 Tix Miðasala

Iðnó Jazz
•
26. október




Róshildur
Róshildur vefur saman hljóðfæraleik, marglaga raddútsetningum og hljóðgervlum. Til verður svífandi rafpopp fullt af nánd, djúpum hljóðheimi og íslenskum textum sem einkennast af einlægni og húmor í bland. Aldrei eru tveir tónleikar eins hjá tónlistarkonunni, en með lúppum, töktum úr umhverfishljóðum og saxafónleik býður hún áhorfendum inn í sinn einstaka heim.
Róshildur er að leggja lokahönd á væntanlega plötu og því ætlar hún að prufukeyra nýtt efni á sérstökum tilraunatónleikum í Iðnó í október.

