Aretha Franklin heiðurstónleikar

Ölver

20. nóvember

Miðaverð frá

6.900 kr.

Stefanía Svavarsdóttir og Elísabet Ormslev stíga á svið í gervi Arethu Franklin og flytja ódauðleg lög drottningar sálartónlistarinnar. Með sér hafa þær frábæra hljómsveit skipuð úrvals tónlistarfólki sem skapar magnaðan hljóðheim og ógleymanlega stemningu.

Aretha Franklin (1942–2018) var ein áhrifamesta og ástsælasta söngkona allra tíma. Hún hóf feril sinn í gospel, en blandaði síðar saman soul, jazz, blues og poppi á einstakan hátt. Hún var fyrirmynd kvenna víða um heim, með raddir sem höfðu bæði kraft og næmni, og hlaut viðurnefnið “The Queen of Soul”.

Með helstu lögum sínum, á borð við Respect, Think, Chain of Fools, I Say a Little Prayer og (You Make Me Feel Like) A Natural Woman, skapaði Aretha tónlistararf sem lifir áfram með nýjum kynslóðum.

Hljómsveitina skipa:

Trommur: Þorvaldur Halldórsson

Bassi: Róbert Þórhallsson

Hljómborð: Birgir Þórisson

Gítar og hljómsveitarstjórn: Bent Marinósson

Básúna: Samúel Jón Samúelsson

Trompet: Snorri Sigurðarson

Saxófónar: Björgvin Ragnar Hjálmarsson

Bakraddir: Íris Lind Verudóttir og Ragna Björg Ársælsdóttir

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger