Ferðaþjónustudaginn 2025: Lykill að bættum lífskjörum

Harpa

23. október

Miðaverð frá

4.900 kr.

Ferðaþjónustudagurinn 2025: Lykill að bættum lífskjörum

Hvert er hlutverk ferðaþjónustu í framtíðarsýn stjórnvalda?

Ferðaþjónustudagurinn 2025 fer fram í Silfurbergi í Hörpu fimmtudaginn 23. október kl. 14.00.

Á Ferðaþjónustudeginum verður rætt um ferðaþjónustu með tilliti til verðmætasköpunar og stöðunnar í hagkerfinu, áhrif greinarinnar á samfélagið og hvað þarf til að tryggja að ferðaþjónusta getið áfram verið lykill að bættum lífskjörum. Þá verður fjallað um mótun atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar og áformað náttúru- og innviðagjald (auðlindagjöld) á ferðamenn. Þannig er yfirskrift dagsins: Lykill að bættum lífskjörum – hvert er hlutverk ferðaþjónustu í framtíðarsýn stjórnvalda?

Forsætisráðherra og ferðamálaráðherra taka þátt

Meðal þátttakenda í ferðaþjónustudeginum í ár eru Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, ferðamálaráðherra og Pétur Óskarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Þá taka góðir gestir – innan ferðaþjónustunnar og utan hennar – þátt í fundinum.

Venju samkvæmt verður síðan blásið til móttöku og netagerðar að afloknum fundi.

Miðasala á Ferðaþjónustudaginn er hafin

Miðaverð á Ferðaþjónustudaginn 2025 er 4.900 kr. Tryggðu þér miða í tíma!

Hægt er að sækja styrki eða endurgreiðslu á ráðstefnugjaldi Ferðaþjónustudagsins 2025 til starfsmenntasjóða. Kynntu þér málið á www.attin.is

Fundurinn er opinn öllum sem hafa hag af og áhuga á ferðaþjónustu á Íslandi.

Vonumst til að sjá sem flest, enda mikilvægt að taka þátt í samtalinu við stjórnvöld!

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger