© 2025 Tix Miðasala
Margar staðsetningar
•
2. - 30. nóvember
Miðaverð frá
6.500 kr.
Ávaxtakarfan er eitt vinsælasta íslenska barnaleikrit allra tíma.
Eftir að hafa verið í sýnt reglulega í Hörpu frá því á vormánuðum 2022 við góðar viðtökur kemur Ávaxtakarfan til Akureyrara eftir 25 ára hlé.
Sýningin hefur hlotið einróma lof sýningargesta og virðast aldnir jafnt sem ungir skemmta sér afar vel.
Leikarahópinn skipar einvala lið og er óhætt að segja að þar sé að finna marga af efnilegustu leikurum þjóðarinnar.
Gói leikstýrir hópnum styrkri hendi, Þorvaldur Bjarni sér um tónlistina einsog áður og Chantelle Carey sér um dansa og sviðshreyfingar.
Höfundur handrits er Kikka K. M. Sigurðardóttir.
Listrænir Stjórnendur:
Leikstjórn: Gói Karlsson
Höfundur tónlistar og Tónlistarstjóri: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
Leikmynda- og búningahönnuðir: Eva Signý Berger og Alexía Rós Gylfadóttir
Leikmyndasmiður: Svanhvít Thea Árnadóttir
Ljósahönnuður: Freyr Vilhjálmsson
Danshöfundur: Chantelle Carey
Leikgervi: Margrét R Jónasar
Framleiðandi: Þorsteinn Stephensen
Chantelle Carey danshöfundur:
Í vinnu minni með ungum dönsurum og listamönnum hef ég veitt því athygli hve miklar mætur þau hafa öll á ávaxtakörfunni þannig að ég er ótrúlega spennt fyrir að taka þátt í þessari uppfærslu með frábæru hæfileikafólki.
Kikka K. M. Sigurðardóttir, höfundur Ávaxtakörfunnar:
"Mér finnst frábært að nýtt fólk sé að setja Ávaxtakörfuna á svið en ekki ég og listrænir
stjórnendur sem ég vinn venjulega með. Ég hef venjulega verið framleiðandi líka en er það
ekki núna og er mjög spennt að sjá útkomuna".