RUMOURS - Til heiðurs FLEETWOOD MAC

Harpa

6. mars

Miðaverð frá

9.990 kr.

RUMOURS - Til heiðurs FLEETWOOD MAC

Hljómplatan Rumours var ellefta plata Fleetwood Mac og kom út í febrúar árið 1977. Hún sló sannarlega í gegn því hún sat í efsta sæti Billboard listans í Bandaríkjunum í sjö mánuði. Rumours er ein söluhæsta hljómplata allra tíma og hefur selst í meira en 40 milljónum eintaka. Platan hefur ítrekað verið valin ein af bestu plötum poppsögunnar enda inniheldur hún sígild lög eins og Don't Stop, Dreams, Go Your Own Way, Songbird og Second Hand News.

Á tónleikunum flytur hópurinn meistaraverkið Rumours í heild sinni ásamt úrvali vinsælustu laga Fleetwood Mac. Má þar nefna Little Lies, Black Magic Woman, Hold Me, Seven Wonders, Gypsy, Big Love og Rhiannon.

Um sönginn sjá STEFANÍA SVAVARS, MAGNI OG MARGRÉT EIR.

Hljómsveitina skipa Stjórnar meðlimirnir Sigfús Óttarsson (trommur) og Kristján Grétarsson (gítar), Todmobile maðurinn Kjartan Valdemarsson (hljómborð) og Todmobile/Stjórnar-liðinn Eiður Arnarsson (bassi).

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger