HAMPARAT

Menningarfélag Akureyrar

20. febrúar

Miðaverð frá

9.900 kr.

Hljómsveitirnar HAM og Apparat Organ Quartet troðfylltu Eldborg fyrr á þessu ári undir samheitinu HAMPARAT. Það má fullyrða að þeir sem voru viðstaddir þennan samruna séu enn að jafna sig. 

Gagnrýnendur voru á einu máli um að sjaldan hefði Eldborg verið nærri því að standa undir nafni og breyst í „vélrænt helvíti, og það var unaðslegt";, eins og Jónas Sen skrifaði svo eftirminnilega í fimm stjörnu dómi sínum á Vísi. Hann bætti við: „Ég veit ekki hvort ég get mælt með þessu. Ég veit ekki heldur hvort ég vil að þetta gerist aftur. En ef það gerist - þá verð ég mættur. Ekki af því ég vil það, heldur af því ég get ekki annað". „Hamparat sýndu fram á að tónlist getur verið meira en list - hún getur verið vopn". - „Þetta var árás á eðlilega skynsemi og hún heppnaðist fullkomlega."

HAMPARAT hefur nú ákveðið að gleðja landsmenn með því að glæða aftur eldinn og gera enn betur, því veislan mun að þessu sinni hefjast á Akureyri þar sem heimamönnum mun gefast tækifæri til að sjá Hof fyllast eldglæringum úr neðra þann 20. febrúar.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger