Opnunarhátíð Bleiku slaufunnar

Borgarleikhúsið

30. september

Miðaverð frá

6.900 kr.

Tryggðu þér miða á opnunarhátíð Bleiku slaufunnar í Borgarleikhúsinu 30. september – Bleika slaufan fylgir hverjum miða

Bleika slaufan árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins gegn krabbameini í konum á einstakan sess í hjörtum landsmanna. Á opnunarhátíð átaksins í ár koma fram margir af okkar dáðustu listamönnum. Húsið opnar kl.17:30 í bleikum hátíðarljóma. Í anddyrinu kynna samstarfsaðilar Bleiku slaufunnar vörur sínar og þjónustu og Steinar Sigurðsson galdrar fram ljúfa djasstóna.

Klukkan 19:00 hefst stórglæsileg dagskrá á sviði leikhússins.

Meðal þeirra sem koma fram eru:

· Birgitta Haukdal

· Emilíana Torrini og Lay Low

· Friðrik Ómar og Jógvan

· Hipsumhaps

· Íslenski dansflokkurinn

· Páll Óskar

· Sigríður Beinteinsdóttir

· Snjólaug Lúðvíksdóttir

Kynnir er Eva Ruza.

Aðgangsmiði á opnunarhátíðina kostar kr. 6.900. Bleika slaufan fylgir hverjum miða og verður afhent við innganginn.

Allt starf Krabbameinsfélagsins miðar að því að færri fái krabbamein, fleiri læknist, lifi lengi og njóti lífsins – með og eftir krabbamein.

Stuðningur einstaklinga og fyrirtækja er forsenda fyrir starfi félagsins, sem byggir alfarið á söfnunarfé.

Við hlökkum til að sjá þig í Borgarleikhúsinu þann 30. september.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger