Offita á krossgötum | Byggjum meðferð á þekkingu

Salurinn

31. október

Miðaverð frá

19.000 kr.

Offita á krossgötum – byggjum meðferð á þekkingu

Félag fagfólks um offitu (FFO) boðar til ráðstefnu þann 31. október í Salnum í Kópavogi fyrir heilbrigðisstarfsfólk, þar sem innlendir og erlendir sérfræðingar fjalla um nýjustu þekkingu á offitu, ýmsa vinkla tengda forvörnum og meðferð við offitu.

Á dagskránni verða meðal annars erindi um:

  • Þróun og orsakaþætti offitu

  • Sérhæfða meðferð og reynsla sjúklinga

  • Næringu, vöðvastyrk og heilsu 

  • Kvenheilsu, hormóna og fitubjúg

  • Offitu barna og samfélagslega ábyrgð

Ráðstefnan er ætluð fagfólki sem sinnir einstaklingum með offitu í sínu klíníska starfi og þeim sem vilja fræðast betur um sjúkdóminn offitu og tengdum áskorunum.

Boðið verður upp á hádegismat og millibita í kaffihléum. Að lokinni ráðstefnu verður ánægjustund. 

Beint streymi:

Við vekjum athygli á því að þau sem ekki komast í Salinn geta keypt sér miða í streymi og fylgst með ráðstefnunni í beinni útsendingu. 

*Hlekkur að streymi verður sendur til þeirra sem kaupa aðgang að streymi þegar nær dregur viðburði og því mikilvægt að skrá niður netfang þegar keyptur er aðgangur á Tix.is!

Nánari dagskrá má finna HÉR

Frekari upplýsingar: Gréta Jakobsdóttir, formaður félags fagfólks um offitu, email: fagfolk.offita@gmail.com og sími: 690-5988

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger