Hvar er tunglið?

Hannesarholt

24. október

Miðaverð frá

5.520 kr.

„Hvar er tunglið?“, tvöföld plata með 24 lögum Sigurðar Flosasonar við ljóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar kom út árið 2006 og vakti talsverða athygli. Kristjana Stefánsdóttir söng lögin en aðrir flytjendur, auk Sigurðar á saxófón, voru þeir Eyþór Gunnarsson á píanó, Valdimar K. Sigurjónsson á kontrabassa og Pétur Östlund á trommur.  Úrval laganna verður flutt í breyttri mynd í Hannesarholti 24. október af Kristjönu, Sigurði og Önnu Grétu Sigurðardóttir sem leikur á píanó en mun einnig syngja. klassískur íslenskur söngjazz í nýjum búningi.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger