© 2025 Tix Miðasala
Harpa
•
10. október
Miðaverð frá
5.900 kr.
Hvítá
Þessi ferska viðbót við tónlistarflóru Íslands heldur hér sína fyrstu tónleika. Frumlegar lagasmíðar, smekklegar útsetningar og faglegar upptökur eru aðalsmerki þessarar rokksveitar sem vakið hefur athygli hér heima og erlendis að undanförnu. Drengirnir í Hvítá eru margreyndir úr íslensku tónlistarlífi og hafa allir verið virkir í margvíslegum tónlistarverkefnum í áratugi. Hér gefst tækifæri til að fá innsýn í fyrstu skref og tilurð rokkbands sem á eftir að láta til sín taka á komandi árum en hljómsveitin vinnur nú að sinni fyrstu breiðskífu. Hvítá skipa:
Róbert Marshall söngur og gítar
Þór Freysson gítar
Pétur Kolbeinsson bassi
Tryggvi Már Gunnarsson gítar
Ingi R. Ingason trommur
Ásgrímur Angantýsson hljómborð