© 2026 Tix Miðasala
Tjarnarbíó
•
8. september
Miðaverð frá
2.000 kr.




TILBOÐ MÁNAÐARINS - Grande
Þriðjudaginn 8. september
Höfundur: Tyrfingur Tyrfingsson
Leikari: Hjörtur Jóhann Jónsson
Þriðjudagskvöldið 8. september hefst á ný leiklestraröðin Tilboð mánaðarins í Tjarnarbíó. Við hefjum lesturinn í vetur á frumraun Tyrfings Tyrfingssonar, óþekktaranga hins íslenska leikhúss, le enfant terrible, einleikinn Grande, lesinn af okkar færasta Hirti Jóhanni Jónssyni sem lék hlutverkið líka í denn. Hér gefst sjaldgæft tækifæri til að heyra höfundinn glænýjan eftir mútur! Grande var útskriftarverk Tyrfings frá Listaháskóla Íslands árið 2011 og þá strax hljómaði þessi fyndna, óhrædda og elskandi höfundarödd á subbuskap og viðkvæmni manneskjunnar sem hefur gert Tyrfing að heitasta leikskáldi okkar tíma. Komið og heyrið Tyrfing áður en hann varð Tyrfingur.
Um Tilboð mánaðarins Tilboð mánaðarins er leiklestraröð þar sem einn þriðjudag í mánuði eru fluttir æfðir leiklestrar af okkar skemmtilegasta bransafólki á heitu tilboðsverði - 2000 kr! Í hverjum mánuði bjóða listrænir stjórnendur, Anna María Tómasdóttir og Gígja Hilmarsdóttir, valinkunnu sviðslistafólki til að velja með sér leikrit til lestrar - nýtt verk, nýtt fólk, nýtt tilboð mánaðarins - alltaf brakandi ferskt. Leiklestrarnir eru í samvinnu við Leikminjasafnið, Sigríður Jónsdóttir sérfræðingur við safnið tekur þátt í umræðum eftir lesturinn og deilir sögulegum gögnum um verkin með áhorfendum. Tilboð sem þú getur ekki hafnað!

