Skapandi tónlist í 40 ár

IÐNÓ

18. nóvember

Miðaverð frá

6.900 kr.

Skapandi tónlist í 40 ár

Wadada Leo Smith / Jakob Bro / Skúli Sverrisson / Matthías Hemstock

Í nóvember fer bandaríski trompetleikarinn og tónskáldið Wadada Leo Smith í sína síðustu tónleikaferð um Evrópu, eftir glæsilegan feril sem spannar meira en sex áratugi.

Wadada hefur heimsótt Ísland níu sinnum á rúmum 40 árum, kennt og komið fram á fjölmörgum tónleikum, og haft djúpstæð áhrif á íslenska tónlistarmenn. Hann hefur unnið með fjölmörgum íslenskum listamönnum, þar á meðal Skúla Sverrissyni, Matthíasi Hemstock, Magnúsi Trygvasyni Elíassyni og Hilmari Jenssyni.

Þessir síðustu tónleikar Wadada á Íslandi verða haldnir í IÐNÓ þann 18. nóvember til að fagna þessum tímamótum og þakka honum fyrir ómetanlegt framlag sitt til íslenskrar tónlistar.

Hljóðfæraleikarar á tónleikunum eru:

  • Wadada Leo Smith – trompet

  • Jakob Bro – gítar

  • Skúli Sverrisson – bassi

  • Matthías Hemstock – trommur

  • Um listamennina

Wadada Leo Smith

Frumkvöðull í bandarískri jazz- og nútímatónlist og einn fremsti trompetleikari samtímans.

Í gagnrýnenda vali DownBeat tímaritsins í ágúst 2025:

  • Wadada Leo Smith valinn #2 sem trompetleikari ársins.

  • Dúettplata Wadada og Aminu Claudine Myers valin #6 yfir bestu plötur síðasta árs.

  • Einnig var Wadada ofarlega á lista til að komast í “Hall of Fame” tímaritsins.

Óður hans til mannréttindabaráttu, fjögurra geisladiska kassinn Ten Freedom Summers, var tilnefndur til Pulitzer-tónlistarverðlaunanna 2013. Auk tónlistarflutnings hefur Wadada kennt tónsmíðar við Bard College, CalArts og Harvard skólann. Trompetmeistarinn og tónskáldið hefur á síðustu árum hlotið margar viðurkenningar eins og æðstu viðurkenningu UCLA háskólans til leikmanna 2019 UCLA Medal, en aðrir sem hafa hlotið þá viðurkenningu eru m.a. Ella Fitzgerald, Henry Mancini, Herb Alpert og Quincy Jones, rithöfundurinn Toni Morrison og Bill Clinton fyrrverandi forseti. Wadada var árið 2023 tekinn inn í American Academy of Arts and Letters, heiðurssamfélag listamanna og rithöfunda, fyrir framlag sitt til tónlistarsköpunar. Í mars á þessu ári kom út ný dúettplata Wadada og píanóleikarans Vijay Iyer, Defiant Life hjá ECM útgáfunni sem þeir hafa hlotið mikið lof fyrir. Á tónleikunum með Wadada spila Jakob Bro gítarleikari, Skúli Sverrisson bassaleikari og Matthías Hemstock trommuleikari.

Jakob Bro

Danski gítarleikarinn og tónskáldið Jakob Bro hefur vakið mikla athygli í jazzheiminum síðustu ár fyrir fjölbreytta tónlist sína. Hann hefur gefið út meira en 20 hljóðritanir með mörgum heimsþekktum tónlistarmönnum og hlotið mikið lof fyrir. Síðasta plata hans sem kom út hjá ECM útgáfunni í fyrra hlaut m.a. 5 stjörnur hjá gagnrýnanda breska blaðsins Guardian. Bro hefur margsinnis komið til Íslands til tónleikahalds, m.a. leikið með Skúla Sverrissyni og Óskari Guðjónssyni í Norðurljósasal Hörpu á jazzhátíð Reykjavíkur 2022 og aftur í maí 2025 á tónleikaferð um Ísland.

Skúli Sverrisson

Bassaleikarinn og tónskáldið Skúli Sverrisson hefur átt langan tónlistarferil og leikið inn á rúmlega 100 hljóðritanir með fjölmörgu tónlistarfólki, m.a. Wadada Leo Smith, Hildi Guðnadóttur, Báru Gísladóttur, Hilmari Jenssyni, Jim Black, Chris Speed, Anthony Burr, Laurie Anderson, Allan Holdsworth, Ryuichi Sakamoto, David Sylvian, Blonde Redhead, Yungchen Lhamo, Jamshied Sharifi og Ólöfu Arnalds og hljómsveitunum Pachora, og Alas No Axis. Skúli hefur einnig verið tónlistarstjóri í hljómsveit tónlistarkonunnar Laurie Anderson.

Matthías Hemstock

Matthías Hemstock trommu- og slagverksleikari nam við Tónlistarskóla FÍH og Berklee College of Music í Boston. Hann hefur leikið afar fjölbreytilega tónlist gegnum tíðina; með Sinfóníuhljómsveit Íslands, frjálsan spuna, latíntónlist, rokk, popp og síðast en ekki síst hefur hann verið einn af helstu jazztrommuleikurum landsins síðustu áratugina. Í júní fékk Matthías styrkveitingu frá minningarsjóði Kristjáns Eldjárns fyrir framlag sitt til tónlistar.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger