Fjölskyldudagskrá Hörpu: Söngstund með Sigga&Ingubjörgu og Maxímús Músíkús

Harpa

2. maí

Miðaverð frá

0 kr.

Söngstund með Sigga&Ingibjörgu og Maxímús Músíkús

  • 2. maí kl. 10:00 & 11:00

  • Kaldalón, Harpa

  • Aldur: 1–8 ára

  • Tungumál: Sungin eru lög aðallega á íslensku í bland við önnur tungumál og tónlist án orða – öll velkomin!

  • Skráning: Nauðsynlegt að ná sér í miða á harpa.is frá og með 27. apríl

Ingibjörg Fríða og Siggi leiða börn og fjölskyldur í stórskemmtilega og lifandi söngstund þar sem sungin verða ýmis þekkt og skemmtileg barnalög. Maxímús Músíkús lætur sig ekki vanta og tekur þátt í gleðinni með sínum fjöruga hætti!

Söngstundin er tilvalin leið fyrir börn að njóta tónlistar, hreyfingar og samveru.
Fjölskylduvænt og frítt – öll hjartanlega velkomin!

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger