© 2025 Tix Miðasala
Margar staðsetningar
•
3 viðburðir
Miðaverð frá
18.900 kr.
LJÚFA LÍFIÐ HEFST. Lífeyrisnámskeið fyrir 50 ára og eldri
Ljúfa lífið er þegar við höfum lokið starfsævinni og förum ekki lengur í vinnu á hverjum degi en þess í stað erum við í sumarfríi 52 vikur á ári og við viljum lifa og njóta. Til þess notum við lífeyrissparnað og ýmsar aðrar leiðir. Þetta námskeið er sérstaklega ætlað þeim sem eru farin að huga að starfslokum og hefja “Ljúfa lífið”.
Á þessu námskeiði er farið yfir útgreiðslu lífeyrissparnaðar og hvernig þær tengjast.
Lögbundinn lífeyrissjóður
Tegundir lögbundinna lífeyrissjóða
Viðbótarlífeyrissparnaður
Tilgreind séreign
Útgreiðsla lífeyrissjóðs.
Útgreiðsla viðbótarlífeyrissparnaðar.
Skattlagning á útgreiðslum.
Lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins.
Nýting eigna.
Það sem þátttakendur fá á námskeiðinu
Áhersla er á að fara yfir málin á mannamáli. Þátttakendur fá verkefni til að skipuleggja sitt LJÚFA LÍF og hvernig þau vilja raða upp sinni innkomu á þessu tímabili í lífinu. Einnig fá þátttakendur samantektar bækling til að nota til upprifjunar.
Nánari upplýsingar:
https://www.valogvirdi.is/lj%C3%BAfal%C3%ADfi%C3%B0l%C3%ADfeyrisn%C3%A1mskei%C3%B0