Bjórhátíð Ölverk 2025

Gróðurhús, Þelamörk 29

3. - 4. október

Miðaverð frá

8.900 kr.

Bjórhátíð Ölverk 2025

Ölverk brugghús kynnir í sjötta sinn bjórhátíð sem enginn sannur bjór-, drykkjar,- og matarsælkeri ætti að láta framhjá sér fara!

Bjórhátíðin fer fram helgina 3. til 4. október í heitu ylræktar gróðurhúsi sem staðsett er miðsvæðis í Hveragerði

Staðfestir framleiðendur eru eftirfarandi en athugið að þessi listi er ekki endanlegur og mun hann uppfærast reglulega fram að sjálfri bjórhátíðarhelginni:

  • Horn Brugghús (Höfn)

  • Mývatn öl ( Mývatn )

  • Ognatura ( Hafnarfirði )

  • Malbygg brugghús ( Reykjavík )

  • Mjólkursamsalan ( Selfoss/Reykjavík )

  • Litla brugghúsið ( Garður )

  • OY Brewing ( Færeyjar )

  • Hovdenak Distillery ( Reykjavík )

  • Smiðjan brugghús ( Vík )

  • Víking brugghús ( Akureyri )

  • Ölverk brugghús ( Hveragerði )

  • Gæðingur brugghús ( Kópavogur )

  • Dokkan Brugghús ( Ísafjörður )

  • Ægir brugghús ( Reykjavík )

  • Grugg & Makk ( Reykjavík )

  • Borg brugghús ( Reykjavík )

  • Húsavík Öl ( Húsavík )

  • Kjörís ( Hveragerði )

  • Djarfi ( Reykjavík )

  • RVK Brewing Company ( Reykjavík )

  • The Brothers Brewery ( Vestmannaeyjar )

  • Brennivín ( Reykjavík )

  • KHB Brugghús ( Borgarfjörður Eystri )

  • Öldur Meadery ( Hella )

  • Fágun ( Ísland )

  • Bjórsetur Íslands ( Hólar í Hjaltadal )

  • Bruggsmiðjan Kaldi ( Árskógsandi )

  • Núllarinn ( Reykjavík )

  • Hella Brugghús ( Hella )

  • Segull 67 ( Siglufirði )

  • Eimverk ( Garðabæ )

Dagskrá

Föstudagurinn 3. október

  • 17:00 - 20:00 - Bjórhátíðarstemning og smakk frá framleiðendum og fyrirtækjum

  • 20:10 - Herra Hnetusmjör

  • 21:00 - 00:00 FM Belfast (DJ)

Laugardagurinn 4. október

  • 16:00 - 20:00 - Bjórhátíðarstemning og smakk frá framleiðendum og fyrirtækjum

  • 20:10 - TBA

  • 21:00 - 00:00 TBA

- Hagnýtar upplýsingar -

Staðsetning

Ölverk bjórhátíðin fer fram í gömlu, heitu ylræktargróðurhúsi fyrir aftan Ölverk pizza & brugghús, eða nánar tiltekið í Þelamörk 29 - Hveragerði.

Miðaverð

Helgararmband 14.990,-

Föstudagsarmband 8.900,- ( takmarkað magn í boði )

Laugardagsarmband 8.900,- ( takmarkað magn í boði )

Innifalið í miðaverði

Sérmerkt armband á einstaka bjór,- og tónlistarhátíð, afnot af sérmerktu Ölverk glasi, smakk á vörum frá hinum ýmsu framleiðendum (áfengir drykkir, óáfengir drykkir, sérgerðir ostar og einstakar ístegundir), tækifæri til þess að þess að eiga skemmtilegt samtal við fólkið á bakvið vörumerkin, tónlistaratriði og danspartý.

Athugið smakkglösunum verður að skila við útgang bjórhátíðarsvæðisins en það verður hægt að kaupa glasið á 1000,-

Afhending armbanda

Fimmtudaginn 2. október verður á milli 18:00-21:00 hægt að nálgast armbönd gegn framvísun miða / kóða á Ölverk Pizza & Brugghúsi í Hveragerði.

Sjálfa bjórhátíðarhelgina, föstudaginn 3. október og laugardaginn 4. október, mun afhending armbanda fara fram við hátíðarsvæðið eða inn á veitingarstað Ölverk.

Aldurstakmark

20 ára aldurstakmark er á bjórhátíðina ( hafið skilríki meðferðis )

Gisting

Hægt er að skoða úrval gististað hér í Hveragerði inn á heimasíðu Ferðamálasamtaka Hvergerðisbæjar ( https://www.visithveragerdi.is/gisting-1 ) en einnig er að finna aðra gistikosti eins og Airbnb húsnæði, hostel, og sumarbústaði í Hveragerði, Ölfusi sem og á Selfossi.

Samgöngur

Allar upplýsingar um Strætóferðir til og frá Hveragerði er að finna inn á www.straeto.is

Bílastæði

Nóg er af bílastæðum á malarplaninu beint á móti bjórhátíðarsvæðinu.

Veitingasala

Veitingasala verður á bjórhátíðarsvæðinu alla helgina en einnig verður opið á veitingastað Ölverk samkvæmt opnunartíma (eldhúsið hættir að taka við pöntunum kl 21:00).

Nánari upplýsingar

Spurningar og fyrirspurnir sendist á olverk@olverk.is

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger