Á grænni grein

Salurinn

5. desember

Sala hefst

25. ágúst 2025, 10:00

(eftir 3 daga)

Grétar Örvarsson, Páll Rósinkranz, Unnur Birna og Ragnheiður Gröndal skapa sanna hátíðarstemningu þar sem gleði og tilhlökkun svífa yfir Salnum. 

Þau munu flytja vinsæl og þekkt jólalög sem sækja hlýjar minningar liðinna jóla og kveikja hinn sanna jólaanda. Grétar og Pál þarf ekki að kynna. Þeir hafa fyrir löngu sungið sig inn í hjörtu þjóðarinnar. Þá er Ragnheiður ein ástsælasta söngkona landsins, sönn stjarna. Unnur Birna hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir fallegan söng og fiðluleik og er á hraðri leið upp á stjörnuhimininn.

Heiti tónleikanna “Á grænni grein”, er jólalag eftir Grétar sjálfan sem vann jólalagakeppni Rásar 2 árið 2020. Hljómsveitin er skipuð úrvals tónlistarmönnum undir stjórn Þóris Úlfarssonar.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger