© 2025 Tix Miðasala
Salurinn
•
7. febrúar
Sala hefst
19. ágúst 2025, 14:00
(eftir 9 klukkustundir)
SÖNGLEIKJASTÆLAR SNÚA AFTUR
Vegna fjölda áskoranna munu Bjarni Snæbjörns og Sigga Eyrún snúa aftur í Salinn með tónleikaröðina SÖNGLEIKJASTÆLA.
Tónleikaröðin sló í gegn í fyrra og er óður til söngleikjanna þar sem ný og gömul söngleikjatónlist fær að njóta sín í meðförum reyndra söng-leikara ásamt hljómsveit.
Sprúðlandi fjölskyldutónleikar um miðjan dag þar sem börn á öllum aldri fá að syngja með.
---
Að þessu sinni verða þrennir tónleikar í tónleikaröðinni Söngleikjastælar sem teygja sig yfir allan veturinn þar sem hverjir tónleikar eru með ólíka nálgun á formið. Ekki missa af enn meiri Söngleikjastælum:
2. nóvember: Nýstirnið Salka Gústafsdóttir og þjóðargersemin Jóhann Sigurðarson koma sem gestasöngvarar og flytja sín uppáhalds söngleikjalög.
25. apríl: Sprengju-tónleikar með Söngleikjakórnum Viðlag.
SMELLTU HÉR TIL AÐ KAUPA ÁSKRIFT Á ALLA ÞRJÁ TÓNLEIKANA Á EINSTÖKU TILBOÐI