Supersport! & Floni // Tónskáldahringekjan

IÐNÓ

10. október

Miðaverð frá

4.900 kr.

Á föstudagskvöldi State of the Art verður boðið upp á tvöfaldan viðburði í Iðnó! Tónskáldahringekjan kl. 20:00 og Supersport! & Floni kl. 21:30.

Tónskáldahringekjan hrekkur í gang í Iðnó þann 10. október kl. 20. Um borð í hringekjunni eru Júlía Mogensen - sellóleikari, Bjarni Frímann - píanóleikari, Kit Downes - orgelleikari, Svetlana Veschagina - píanóleikari, Ketija Riinga - flautuleikari og John Mcowen- kontrabassaklarinettuleikari.

Hvert og eitt þeirra í þungavigtarflokki. Hringekjan fer þannig fram að hver meðlimur semur verk fyrir þann næsta í hringekjunni sem flytur verkið og semur annað fyrir næsta kollega þar til við erum komin í hring. Hringekjufararnir koma víða að og hafa fengist við tónlist af ýmsum toga og munu því koma með spennandi veganesti í farteski sínu.

—-

Autotjúnaðir blíðsöngvar í eina sæng við gítardrifið indírokk, einungis þetta eina kvöld í Iðnó, á tónlistarhátíðinni State of the Art!

Þegar Flona ber á góma þá er klingjandi melódískt gítarrokk ekki það fyrsta sem manni dettur í hug. Þvert á móti gat hann sér gott orð sem einn af kyndilberum íslensku rappsenunnar við útgáfu fyrstu plötu sinnar 2017. Þar blandaði hann saman tilfinningarappi við hart trap og uppskar miklar vinsældir.

Nýbylgjusveitin Supersport! hefur ekki fengist við autotune og trap takta af jafn miklum mætti og Floni en hefur fest sig í sessi sem ein helsta rokksveit landsins. Hljómsveitin hefur hlotið ýmis verðlaun og ferðast víða um Evrópu með gítardrifna indírokk sitt. Liðsmenn sveitarinnar hafa einnig verið kyndilberar íslensku grasrótarinnar með störfum sínum í listasamlaginu post-dreifing.

Á þessum einstöku tónleikum leiða þessir listamenn saman hesta sína. Supersport! kemur fram ásamt Flona þar sem lög rapparans verða sett í glænýjan búning og Floni blandast kammerpoppuðum gítarsmellum Supersport!

Vinsamlegast athugið að bæði Tónskáldahringekjan og Supersport! & Floni eru standandi viðburðir.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger