© 2026 Tix Miðasala

Sykursalurinn
•
20. september




Undirmannaðar 2 ára – Afmælispartý
Í samstarfi við
Landsbankann, Nettó, HIPP, Mist & Co, Rent-A-Party, Maika'i, Share Iceland
Tvö ár, yfir hundrað þættir, mikið hlegið og eitt mjög verðskuldað afmælispartý! Komdu og fagnaðu með okkur í Sykursalnum með pomp og prakt.
Hvað er á dagskrá?
– Fordrykkur við komu - já og þú mátt klæðast pallíettum og gjafahaldaranum
– Veglegir gjafapokar - Frá okkar uppáhalds fyrirtækjum!
– Live spjall - ekki vera hissa þó við tölum um t.d. gyllinæð, samviskubit og svefnleysi
– Spurningakeppni – Vegleg verðlaun fyrir þau heppnu!
– DJ og danstónlist – við ætlum heldur betur að skemmta okkur fram á kvöld
– Bar á staðnum – við drekkum í hófi, eða ekki
– Hópferð í bæinn eftir partýið – svo við endum þetta með stæl
Hvort sem þú ert mamma, vinkona, frænka, millennial eða langar bara í smá me-time, þá er þetta kvöld fyrir þig. Skelltu á þig gloss, láttu makann um háttatímann og mættu með þínum bestu!
Það er bara ein regla: Við hlæjum mikið, fögnum saman og skálum fyrir okkur sjálfum!

