© 2025 Tix Miðasala
Hlégarður
•
28. ágúst
Miðaverð frá
5.900 kr.
Bjartmar Guðlaugsson... & Hipsumhaps Í túninu heima
Það verður sannkölluð tónlistarveisla þegar Bjartmar Guðlaugsson... & Hipsumhaps stíga á svið saman í Hlégarði þann 28. ágúst sem hluti af bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í túninu heima.
Tónlist Bjartmars hefur átt stóran sess í íslenskri tónlistarsögu og nú fær hann félagsskap frá Hipsumhaps, sem hefur vakið mikla athygli fyrir frumlega og einlæga tónlist.
„Ég er að halda tónleikaseríu með hinum og þessum - hér og þar. Ég elska tónlistina hans Bjartmars. Hann er goðsögn í íslenskri tónlistarsögu.” segir Fannsi, Hipsumhaps.
Saman munu þeir setja saman smekklegan lagalista þar sem lög úr smiðju beggja fá að njóta sín – með frábærri hljómsveit að baki. Þetta eru tónleikar sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta framhjá sér fara.
Hljómsveit kvöldsins:
Bjartmar Guðlaugsson - söngur
Fannar Ingi Friðþjófsson - söngur og gítar
Daði Birgisson - hljómborð
Kristinn Þór Óskarsson - gítar
Ólafur Alexander Ólafsson - bassi
Sólrún Mjöll Kjartansdóttir - trommur
Tumi Árnason - saxófónn
Við hlökkum til að sjá sem flesta. Tryggið ykkur miða!