Cantoque syngur Pärt

Kristskirkja v/Landakot

11. september

Miðaverð frá

5.900 kr.

Cantoque syngur Pärt

Kammerkórinn Cantoque Ensemble mun heiðra eistneska tónskáldið Arvo Pärt á níræðisafmæli hans þann 11. september. Sönghópurinn mun flytja dagskrá af verkum tónskáldsins sem hann hefur samið fyrir a capella kór, eða kór án undirleiks, undir stjórn hins virta kórstjóra Bernharðs Wilkinson sem kemur til Íslands sérstaklega við þetta tækifæri. Bernharður Wilkinson bjó í tæp þrjátíu ár á Íslandi. Á þeim tíma lék hann fyrstu flautu með Sinfóníulhjómsveit Íslands auk þess sem hann stjórnaði hljómsveitinni við ýmis tækifæri. Hann leik einnig með Kammersveit Reykjavíkur og var meðlimur í Blásarakvintett Reykjavíkur. Bernharður stjórnaði ennfremur tveimur af fremstu kórum Íslands, Söngsveitinni Fílharmóníu og Hljómeyki. Hann er nú búsettur í Færehum þar sem hann stjórnar Sinfóníuhljómsveit Færeyja og einnig tveimur kórum. Hann hlaut nýlega danska riddarakrossinn frá danska konunginum fyrir þjónustu sína við færeyska tónlist.

Arvo Pärt er eitt dáðasta tónskáld samtímans, draumkenndri tónlist hans hefur verið líkt við að hlustendur nálgist guðdóminn, enda sækir hann mikinn innblástur í kristna trú. Því þótti við hæfi að halda tónleikana í helgidóminum í Kristkirkju, Landakoti. Tónleikarnir hefjast kl 21.

Cantoque Ensemble er 10 manna atvinnukór sem hefur vakið verðskuldaða athygli frá stofnun árið 2017. Hann starfar mikið bæði hérlendis og erlendis og hefur í þrígang verið tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir söng sinn.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger