© 2025 Tix Miðasala
Hljómahöll
•
15. september
Miðaverð frá
2.500 kr.
Anya Shaddock í Hljómahöll
Ný og spennandi rödd íslenskrar tónlistarsenu í Hljómahöll.
Anya Shaddock er 22 ára íslensk-amerísk söngkona og lagahöfundur frá Fáskrúðsfirði og Boston. Hún blandar saman jazz, funk og R&B á einstakan hátt og hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir bæði frumsamda tónlist og magnaða sviðsframkomu.
Hún hefur unnið bæði Samfés og Nótuna, tekið þátt í Tónaflóði RÚV, komist í top 18 í Idol og gefið út plötuna Inn í borgina – sem var plata vikunnar á Rás 2 og sló í gegn á spilunarlistum.
Anya semur, útsetur og framleiðir sína tónlist sjálf – og nú stígur hún á svið í Hljómahöll með kraft, sál og sögur sem ná beint til hjartans.