© 2025 Tix Miðasala
Hótel Reykjavík Grand
•
11. september
Miðaverð frá
26.900 kr.
Krossmiðlun 2025
Vistkerfi vörumerkja
Hótel Reykjavík Grand
11. september 2025
kl. 8:30–13:00
Taktu daginn frá!
Forsöluverð til 3. september!
Krossmiðlun 2025 er ómissandi viðburður fyrir öll sem vinna við eða hafa áhuga á markaðsmálum og þróun vörumerkja. Í ár beinum við sjónum að vistkerfi vörumerkja – hvernig ný tækni, samfélagsbreytingar og menningarstraumar móta og umbreyta sambandi fólks við vörumerki. Ráðstefnan fer fram þann 11. september á Hótel Reykjavík Grand.
Frá upphafi árið 2012, hefur Krossmiðlun verið vettvangur þar sem helstu sérfræðingar og hugsuðir markaðsheimsins deila innsýn sinni, þekkingu og framtíðarsýn. Dagskráin í ár er skipuð öflugum fyrirlesurum sem munu kynna ferskar hugmyndir og praktískar lausnir fyrir þau sem starfa við markaðsmál í heimi þar sem þróunin er hröð. Að lokinni dagskrá býðst þátttakendum að njóta léttra veitinga og skerpa tengslin. Krossmiðlun veitir kröftugan innblástur og sýn í heim stefnumóturnar, hönnunar og markaðsmála. Þetta er viðburður sem þú vilt ekki missa af!
Fyrirlesarar eru:
Matthew Moran, yfirmaður stefnumótunar í nýsköpun hjá OAG (Omnicom Advertising Group).
Matthew Moran vinnur á mörkum tækni, menningar og mannlegrar hegðunar og finnur þar ný tækifæri fyrir vörumerki framtíðarinnar. Hans bakgrunnur liggur í hönnun, vörumerkjastefnu og upplifunarhönnun og hann hefur mótað stefnu fyrir heimsþekkt vörumerki á borð við Adidas, Airbnb, Amazon, Apple, Campari og Tourism NewZealand.
Á ráðstefnunni leiðir Matthew gesti í gegnum það hvernig breytileg hegðun, hröð tækniþróun og menningarstraumar eru að umbreyta sambandi fólks við vörumerki. Hann kynnir jafnframt hagnýtan ramma til að hanna sannfærandi og merkingarbæran vörumerkjaheim sem fólk vill kynnast, upplifa og tengjast.
Paula Sonne frá Eleven\TBWA í Finnlandi, sérfræðingur í áunninni fjölmiðlaumfjöllun (earned media).
Paula stýrir samskiptastofunni Eleven og er leiðandi afl í „earned-first“ nálgun TBWA, þar sem hugmyndaauðgi og samfélagsleg tenging skiptir mestu máli. Hún hefur átt stóran þátt í margverðlaunuðum herferðum á borð við The Polite Type, Keys for Peace og For MENstruation, sem hafa vakið heimsathygli og hlotið viðurkenningar af Cannes Lions, D&AD og Forbes. Á ráðstefnunni mun Paula fjalla um hvernig vörumerki geta skapað raunveruleg tengsl og vakið athygli, ekki með meira fjármagni, heldur djarfari hugmyndum og nálgun.
Sigurlína Ingvarsdóttir, meðstofnandi fjárfestingarsjóðsins Behold Ventures og stjórnarmaður í Festi.
Sigurlína hefur starfað við tölvuleikjagerð í fjórum löndum og er ein af stofnendum norræna fjárfestingarsjóðsins Behold Ventures, sem fjárfestir í frumkvöðlateymum í tölvuleikjaiðnaðinum. Hún hefur leitt þróun á sumum af stærstu tölvuleikjavörumerkjum heims, þar á meðal Star Wars Battlefront og EA Sports FIFA. Í erindi sínu mun Sigurlína fjalla um reynslu sína af því að starfa við þessi risavörumerki og hvað aðrir geirar geta lært af tölvuleikjaiðnaðinum, sérstaklega þegar kemur að nýsköpun, vörumerkjavistkerfum og félagslegum tengslum framtíðarinnar.
Ráðstefnustjóri er Bergur Ebbi Benediktsson
Dagskrá:
8.00 Húsið opnar
8.30 Morgunverður
9:00 Ráðstefna hefst
12.00 Hádegisverður, spjall og tengslanet
13.00 Ráðstefnu lýkur
Innifalið í verði er:
Morgunverður, kaffi, léttur hádegisverður, léttvín og bjór