Þurfum ekki neitt - Una Torfa og Haffi í Hvalsneskirkju

Hvalsneskirkja

31. ágúst

Sala hefst

15. júlí 2025, 10:00

(eftir 5 daga)

Þurfum ekki neitt - Una Torfa og Haffi í Hvalsneskirkju

Nú í sumar lögðu Una Torfa og Hafsteinn Þráinsson, einnig þekktur sem CeaseTone, af stað í músíkalst ferðalag um landið. Parið hefur marga músíkfjöruna sopið, þau hafa flakkað um landið og flutt lög í stórum sölum og litlum kirkjum, fyrir fólk á öllum aldri á blíðviðriskvöldum og í óveðri.

Una og Haffi helga sig því gleðilega verkefni að spila úti um allt land. Með sinn hvorn gítarinn að vopni og í góðum félagsskap verða þau óstöðvandi og skemmtilegheitin allsráðandi.

Þau endurtaka svo þann leik enn aftur og verða með á Vitadögum - hátíð milli vita í Suðurnesjabæ. Skiljið allt nema góða skapið eftir, af því að staðreyndin er sú að við þurfum ekki neitt.

Frekari upplýsingar um Unu Torfa má finna á www.unatorfa.com 

Frekari upplýsingar um Vitadaga - hátíð milli vita má finna hér:

https://www.facebook.com/profile.php?id=61562368704067

Fyrir frekari upplýsingar og fyrirspurnir má senda  camilla@icelandsync.com

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger