© 2025 Tix Miðasala
Hinsegin Dagar
•
9. ágúst
Miðaverð frá
2.500 kr.
Lokahóf Hinsegin daga
Komið og verið með á lokahófi Hinsegin daga. Siggi Gunnars mun hefja kvöldið og rífa upp stemninguna. Sirkusundrið Enter Serenity úr Briefs Factory og Dragdrottningin Sherry Vine munu koma og gera allt vitlaust. DJ Ragga Holm mun svo loka kvöldinu og halda okkur dansandi fram eftir nóttu. Ragga Holm ætlar líka að fá Margréti Rán með sér á svið og munu þær gjörsamlega trylla lýðinn eins og þeim einum er lagið!
Athugið að í fyrra komust færri að en vildu.
Á lokahófi Hinsegin daga verður umfram allt rými til að sleppa sér aðeins, njóta samverunnar á dansgólfinu og ljúka Hinsegin dögum með stæl.
22:00 Siggi Gunnars
22:45 Sherry Vine
23:45 Enter Serenity
00:30 Ragga Holm
Forsöluverð á TIX er 2.500 kr
Verð við hurð er 3.500 kr