Ásmundarsalur

14. ágúst

Miðaverð frá

4.720 kr.

Undarlegar verur hafa tekið yfir Ásmundarsal og bjóða ykkur velkomin á plánetuna Venus.

Danssýning sem tekur þig inn í draumveruleika þar sem feðraveldið var aldrei til. Stígðu inn í útópíuna með bleikan Venusdrykk í hendi og njóttu þess að vera.

Danssýningin Venus er litríkt og sjónrænt ferðalag þar sem höfundarnir Anna Guðrún og Bjartey gera tilraun til að núllstilla kvenlíkamann. Þær skora á hið karllæga augnaráð með því að gangast við hlutgervingunni, afbyggja hana og skapa dýrslega veru úr konunni. Fáránleiki hlutgerfingarinnar afhjúpast og verður hlægileg. Hún er beygð, teygð, snúin á hvolf og ýkt. Mörkin milli gervileika og hins ekta eru máð út, jafnt og fegurðin og hið ljóta. Hið kvenlega, vélræna, karllæga og dýrslega.

14. - 16. ágúst 2025 eftir lokun í Ásmundarsal munu dansarar taka yfir safnið og umbreyta því í lifandi danssýningu. Áhorfendum er boðið að stíga inn í heim Venusar og mæta flytjendum í upp­lifun þar sem öll skyn­færi áhorfenda eru virkjuð. Sýningin er u.þ.b. 2 klukkustundir og á þeim tíma munu áhorfendur ferðast með flytjendum á milli rýma í Ásmundarsal. Gestum er boðið upp á drykk frá Eldblóm sem er innifalinn í miðaverði. Athugið að ekki er aðgengi fyrir hjólastóla í rýminu.

Aðstandendur:

Listrænir stjórnendur: Anna Guðrún Tómasdóttir og Bjartey Elín Hauksdóttir

Hljóðmyndahönnun: Anna Róshildur

Ljósahönnun og tæknistjóri: Cristina Agueda

Grafísk hönnun: Þorgeir K. Blöndal

Ljósmyndun: Daníel Máni Magnússon

Flytjendur:

Alice Romberg

Anna Guðrún Tómasdóttir

Anna Róshildur

Bjartey Elín Hauksdóttir

Cristina Agueda

Elida Angvik Hovdar

Ida Hebsgaard Mogensen

Karitas Lotta Tulinius

Olivia Teresa Due Pyszko

Rebekka Guðmundsdóttir

Þórunn Guðmundsdóttir

Verkefnið er styrkt af Sviðslistasjóði og Reykjavíkurborg

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger