Englar og menn - tónlistarhátíð Strandarkirkju 2025

Ölfus - Strandarkirkja

20. - 27. júlí

Miðaverð frá

4.500 kr.

Englar og menn

Hin árlega tónlistarhátíð, Englar og menn í Strandarkirkju í Selvogi hefst sunnudaginn 6. júlí nk. með tónleikum kl. 14. Hátíðin stendur yfir sem fyrr í júlímánuði og eru tónleikar alla sunnudaga kl. 14.

Þetta er fjórtánda starfsár hátíðarinnar en hátíðin hefur alla tíð verið vel sótt. Margir koma um langan veg á tónleika enda bera margir hlýjar taugar til Strandarkirkju, sem er þekkt áheitakirkja og þar þykir vera sérstakur kraftur til hjálpar og bænheyrslu. Kirkjan er einstaklega hljómfögur og því ljúft að njóta þar tónlistarflutnings og drekka í sig sögu og anda kirkju og staðar.

Á tónleikum hátíðarinnar hljómar allt frá íslenskum sönglögum, þjóðlögum og dægurflugum til evrópskrar ljóðatónlistar, klassískrar tónlistar og tónlistar íslenskra söngvaskálda í flutningi þjóðþekktra söngvara og hljóðfæraleikara. Þema hátíðarinnar er englar og menn, land, náttúra, trú og saga.

Á opnunartónleikum hátíðarinnar koma fram feðgarnir Kristinn Sigmundsson bassi og Jóhann Kristinsson baritón og flytja íslensk og erlend sönglög. Helga Bryndís Magnúsdóttir leikur með þeim á píanó og orgel.

Kristinn Sigmundsson hefur sungið yfir 100 óperuhlutverk í öllum helstu óperuhúsum heims í tæpa fjóra áratugi og unnið til Grammy verðlauna ásamt fjölda annara verðlauna. Sonur hans Jóhann var útnefndur söngvari ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2023 og hefur sungið með mörgum af virtustu sinfóníuhljómsveitum Evrópu.

Listrænn stjórnandi hátíðarinnar er sem fyrr Björg Þórhallsdóttir og aðgangseyrir er kr. 4.500.

Tónlistarhátíðin er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurlands.

Dagskrá:

Sunnudagur 6. júlí kl.14

VORGYÐJAN KEMUR

  • Jóhann Kristinsson baritón

  • Kristinn Sigmundsson bassi

  • Helga Bryndís Magnúsdóttir orgel / píanó

Sunnudagur 13. júlí kl. 14

MITT DRAUMALAND

  • Bernadett Hegyi sópran

  • Margrét Björk Daðadóttir alt

  • Márton Wirth orgel / píanó

Sunnudagur 20. júlí kl. 14

ÞORLÁKSMESSA Á SUMRI

  • Prestur: Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir

  • Björg Þórhallsdóttir sópran

  • Elísabet Waage harpa

  • Hilmar Örn Agnarsson orgel

Sunnudagur 27. júlí kl.14

Á FERÐ OG FLUGI

  • Lilja Guðmundsdóttir sópran

  • Bjarni Thor Kristinsson bassi

  • Ástríður Alda Sigurðardóttir orgel / píanó

MIÐASALA ER Á TIX.IS OG VIÐ INNGANGINN

Miðaverð er 4.500kr

Stofnandi og listrænn stjórnandi hátíðarinnar er Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona.

Tónlistarhátíðin er styrkt af Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger