Álfastund

Hjálmaklettur Borgarnesi

4. október

Miðaverð frá

7.400 kr.

Álfastund

Málþing um álfa og huldufólk í heimabyggð verður haldið í Hjálmakletti í Borgarnesi þann 4. október 2025.

Flutt verða stutt erindi frá ólíkum sjónarhornum sjáenda, fræðafólks, listafólks og almennings og samtal tekið við þátttakendur um þennan óáþreifanlega hluta menningararfsins. Hér gefst þátttakendum einstakt tækifæri í heimabyggð til þess að hafa áhrif á og sameinast um að varðveita og halda þessum menningararfi lifandi fyrir komandi kynslóðir.

DAGSKRÁ

  • 09:45 Húsið opnar

  • 10:15 Álfastund sett

  • 10:20-12:15 Fyrirlestrar

  • 12:15-13:00 Hádegishlé - súpuhlaðborð og brauð, kaffi og spjall

  • 13:00-14:15 Fyrirlestrar

  • 14:15-14:30 Kaffi og kruðerí

  • 14:30-15:30 Umræður/Vinnustofur

  • 15:30 Álfastund slitið

Erindi og fyrirlesarar verða:

  • Undrun, töfrar og auðlindir

Bryndís Fjóla Pétursdóttir, völva og stofnandi Huldustígs ehf.

  • Angan Álfheima

Hraundís Guðmundsdóttir, skógfræðingur, ilmolíufræðingur og eimari

  • Lífssýn Erlu Stefánsdóttur

Bergþóra Andrésdóttir, bóndi, jógakennari og náttúruunnandi

  • Eykur þekking á hulduheimum virðingu fyrir náttúru landsins?

Gígja Árnadóttir, heldri borgari

  • Tilurð verksins Hulið

Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, ung Borgfirsk sviðslistakona

  • Álfasögur Ólafs í Purkey og eldri heimildir um huldufólk

Jón Jónsson, þjóðfræðingur á Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Ströndum – Þjóðfræðistofu

  • Hidden people and hidden things: nature is more than we can see - ath. fyrirlesturinn fer fram á ensku!

Ole Martin Sandberg, heimspekingur við Háskóla Íslands

Í lokinn verða umræður/vinnustofur.

Þverfagleg stefnumótun, framtíðarsýn og ályktun skrifuð. Umsjón Bryndís Fjóla Pétursdóttir

Kaffi, te og vatn verður í boði yfir daginn.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger