© 2025 Tix Miðasala
Harpa
•
8. ágúst
Sala hefst
3. júlí 2025, 09:00
(eftir 2 daga)
Flytjendur: Bryndís Guðjónsdóttir sópran, Guja Sandholt mezzó-sópran, Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari
Hvað er til af söngdúettum eftir kventónskáld? Er hægt að nálgast nótur að þeim? Hverjar eru og voru konurnar sem hafa samið þessa tónlist og af hverju þekkjum við svona fáar þeirra? Hver var Elísabet Jónsdóttir, Ida Boyle, Camille Chaminade? Hvað eiga Ingibjörg Azima og Rebecca Clarke sameiginlegt?
Komið á opnunartónleika Seiglu og kynnist tónlist sem sjaldan heyrist flutt. Þeir eru allt í senn tónleikar, óður til ljóða, óformleg rannsókn og feminísk sögustund. Einnig mun heimsfrumflutningur á nokkrum nýjum söngdúettum eiga sér stað.
Tónlistarkonurnar Bryndís Guðjónsdóttir sópran, Guja Sandholt mezzó-sópran og Eva
Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari hafa lengi lifað og hrærst í tónlistarheiminum en hófu nýlega
að velta fyrir sér hvaða spennandi söngdúettum eftir konur tónverkasöfn heimsins luma á.
Þær munu flytja saman söngdúetta og söngljóð kvenna, fræðast um þær og vekja athygli á tónlistinni þeirra - saman og stundum í sundur - flytja þær söngdúetta, einsöngsljóð og píanóverk sem eiga erindi við okkur öll.
Hátíðardagskrá Seiglu, upplýsingar um flytjendur og aðra viðburði má finna á www.seiglafestival.com
Harpa er sérstakur styrktaraðili Seiglu 2025. Tónlistarhátíðin Seigla er einnig styrkt af Styrktarsjóði SUT og Ruthar Hermanns, Ýli, Listaháskóla Íslands og Íslenska Schumannfélaginu.