© 2025 Tix Miðasala
IÐNÓ
•
27. september
Sala hefst
26. júní 2025, 00:00
(eftir 4 daga)
Hot Events RVK í samstarfi við Fernet Branca og Luxor kynna: Markus Homm & Gorge í Iðnó - Laugardaginn 27.september.
Markus Homm og Gorge eru þekktir fyrir sinn einstaka hljóðheim innan Deep house / House / Tech house / Minimal senunnar. Þeir hafa farið um víðan völl og báðir spilað á þekktustu klúbbum heims þar á meðal Berghain, Tresor, Watergate og Pacha svo eitthvað sé nefnt.
Markus Homm er sannkallaður þungaviktamaður í raftónlistarsenunni sem pródúser og DJ, hann hefur meðal annars gefið út á 8bit og PokerFlat. Markus hefur tileinkað lífi sínu dansi og tónlist og er lagaval hans bakvið dj borðið allt frá klassískri house tónlist í underground techno.
Gorge er einnig þungaviktamaður í raftónlist og þekktur fyrir að setja svip sinn á house senuna sem pródúser og DJ. Hann byrjaði ferilinn á níunda áratugnum og litaðist af klúbbasenunni í Þýskalandi á þeim árum. Hann byrjaði að pródúsera eftir aldamótin og stuttu eftir það stofnaði hann 8bit Records ásamt Nick Curly.
Upphitun verður í höndum Tomashevsky, A:Wide, Dia G og DJ Margeir.