© 2025 Tix Miðasala
Bæjarbíó
•
18. október
Miðaverð frá
7.990 kr.
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR - Jóhann Helgason og hljómsveitin Gammar frumflytja lög af splunkunýrri sólóplötu Jóhanns í bland við vel þekkta eldri smelli.
Meðlimir Gamma eru: Björn Thoroddsen, gítar, Þórir Baldursson, hljómborð, Stefán S. Stefánsson saxófónn, Bjarni Sveinbjörnsson, bassi og Sigfús Óttarsson, trommur.
Jóhann hefur samið fjölda laga sem eru orðin samofin þjóðarsálinni. Má þar nefna lögin Söknuður, Seinna meir, Ég gef þér allt mitt líf, Í Reykjavíkurborg, Karen, Ástarsorg, Sail On, She´s Done It Again, Ástin og lífið o.fl.
Missið ekki af þessu einstaka tækifæri til að sjá Jóhann á sviði með hljóðfæraleikurum í fremstu röð.