Jólasveinabaðið

Jarðböðin, Mývatni

6. desember

Miðaverð frá

0 kr.

Ekki missa af hinu árlega jólabaði Jólasveinanna í Dimmuborgum sem verður í Jarðböðunum við Mývatn þann 6. desember kl. 16:00.

Bræðurnir eru misglaðir með þessa hefð og sumir gætu hugsað sér margt annað skemmtilegra að gera rétt fyrir jól. En í bað skulu þeir og við mælum með að þú látir þig ekki vanta á þennan einstaklega áhugaverða bað-viðburð!

Ef þig langar til að hitta Jólasveinana í Dimmuborgum á heimaslóðum sínum að þá getur þú bókað miða til að heimsækja þá hér: https://tix.is/is/event/19782/, en þeir taka á móti gestum vel valda daga á aðventunni.

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger