Gervigreindarnámskeið fyrir félaga í Framsókn

Bæjarlind 14

2. september

Nýttu kraft gervigreindar í þínu starfi – aðeins á tveimur klukkustundum

Aðeins fyrir félaga í Framsókn

Lærðu að nota ChatGPT til að vinna hraðar, skipulegar og með aukinni sköpunargleði – hvort sem þú starfar við skrif, þjónustu, stjórnunarstörf, markaðsmál eða einfaldlega vilt spara tíma í daglegu lífi.

Á þessu aðgengilega og hagnýta námskeiði fyrir byrjendur verður farið yfir helstu möguleika ChatGPT, hvernig hægt er að nýta tæknina strax í eigin verkefni, og þátttakendur fá einnig verklegar æfingar sem nýtast í raunverulegum aðstæðum.

Bæði hægt að mæta á staðinn og taka þátt á netinu. En passaðu að hafa sama netfang í miðakaupum á TIX.is og þú munt nota til þess að taka þátt á netinu.

Staðsetning: Bæjarlind 14-16, 2. hæð

Tími: Þriðjudaginn 2. september  kl. 19:00–21:00

Leiðbeinandi: Stefán Atli Rúnarsson, markaðssérfræðingur og áhugamaður um gervigreind

Þátttakendur koma með eigin fartölvu

Dagsetningar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger