© 2025 Tix Miðasala
Harpa
•
8. - 9. júlí
Miðaverð frá
4.900 kr.
Haukur Gröndal, klarínett
Ásgeir J. Ásgeirsson, bouzouki, tamboura
Þorgrímur Jónsson, bassi
Erik Qvick, slagverk
Byzantine Silhouette, sem margir tónlistarunnendur þekkja vel – einkum unnendur balkantónlistar – heldur upp á 15 ára afmæli með tónleikum hjá Jazzklúbbnum Múlanum. Sveitin leikur fjölbreyttar og rytmískar tónsmíðar með áhrifum frá Grikklandi, Búlgaríu, Makedóníu og Tyrklandi. Tónleikakvöldin á Múlanum eru kærkomið tækifæri fyrir sveitina til að fagna með gestum. Á efnisskránni verður bæði nýtt efni og þekktar perlur úr safni sveitarinnar.