© 2025 Tix Miðasala
Háskólabíó
•
20. mars
Sala hefst
16. júní 2025, 10:00
(eftir 1 dag)
ALMENN SALA HEFST 16. JÚNÍ KL. 10
FORSALA SENU LIVE FER FRAM 14. JÚNÍ KL. 10
SKRÁNING Í HANA HÉR
Dara Ó Briain elskar Ísland og kemur nú aftur í heimsókn með nýju sýninguna sína Re:Creation. Á síðasta heimstúr So, Where Were We? sem var valinn UK Comedy Tour of the Year 2023 (Chortle) sló hann í gegn á yfir 173 sýningum í 20 löndum og slær nú ekki slöku við. Kominn með nýtt efni og hlakkar til að stíga á svið í Háskólabíói til að gera það sem hann gerir best: Standa á sviði, segja sögur og trylla salinn. Þetta verður verulega gaman!
Dara er með eitt þekktasta andlitið í bresku sjónvarpi og hefur gert garðinn frægann sem þáttastjórnandi vinsælla þátta á borð við Mock The Week, Stargazing Live, Robot Wars á BBC sem og spurningaþáttarins Blockbusters á Comedy Central. Daily Telegraph valdi hann sem einn af 50 fyndnustu grínistum 21. aldarinnar.
“Hreinn, ómengaður grínsnillingur.” - Evening Standard
“Svona á að gera snjallt og beinskeytt uppistand.”- The Guardian
“Ef þú vilt grínista sem vefur áhorfendum um fingur sér í tvo klukkutíma — þá er Dara maðurinn.”- The Times
Selt er í númeruð sæti og kosta miðarnir: 11.990 kr.
Umsjón: Sena Live